Fara í innihald

GNOME

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
GNOME
GNOME merkið

Útgáfa 3.8.2 sem sýnir yfirlitsham.
HöfundurGNOME verkefnið
Fyrst gefið út3. mars 1999
Nýjasta útgáfa3.30.0 / 5. september 2018
Forskoðunarútgáfa3.30rc2 / 1. September 2018
Tungumál í boðiFjöltyngt (49 tungumál)
Notkun Skjáborðsumhverfi
LeyfiHið almenna GNU leyfi (GNU GPL) [1]
Vefsíða http://gnome.org/

GNOME (sem stóð upprunalega fyrir GNU Network Object Model Environment) er skjáborðsumhverfi fyrir UNIX og lík stýrikerfi. GNOME er hluti af GNU-verkefninu.

Byrjað var að vinna að GNOME-verkefninu árið 1997 og var markmið þess að bjóða upp á frjálst skjáborðsumhverfi (einnig þekkt sem gluggaumhverfi, en skal þó ekki rugla saman við gluggakerfi) fyrir GNU/Linux stýrikerfið. GNOME er eitt af vinsælustu gluggaumhverfum fyrir Linux stýrikerfi ásamt KDE og Xfce en margar Linux dreifingar eins og til dæmis Ubuntu, Fedora og Debian nota GNOME sem aðalskjáborðsumhverfi.

  Þessi hugbúnaðargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.