Fara í innihald

Fritillaria agrestis

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stækju-Vepjulilja

Vísindaleg flokkun
Ríki: Plantae
(óraðað): Angiosperms
Flokkur: Einkímblöðungar
Ættbálkur: Liljubálkur (Liliales)
Ætt: Liljuætt (Liliaceae)
Undirætt: Lilioideae
Ættkvísl: Fritillaria
Tegund:
F. agrestis

Tvínefni
Fritillaria agrestis
(Greene) Greene
Samheiti

Fritillaria biflora var. agrestis Greene

Fritillaria agrestis er tegund vepjulilju sem var fyrst lýst af Edward Lee Greene. Hún finnst eingöngu í Kaliforníu, þar sem hún finnst í dreift frá Mendocino County og Butte County til Ventura County.[1] Hún vex í þungum jarðvegi, sérstaklega leirjarðvegi. Ekki algeng.[2]

Fritillaria agrestis hefur uppréttan stöngul sem nær um hálfum meter á hæð með klump af 5 til 12, löngum, mjóum blöðum í hvirfingu við stofn. Lútandi blómin eru bjöllulaga, hvert um 3 sentimetra langt og stundum sveigð til endanna. Þau eru hvít með grænleitar eða bleikleitar merkingar á ytri hlið blóma og fjólu-brún að innan. Blómið hefur óviðkunnanlega lykt.[3][4][5]

Tilvitnanir

[breyta | breyta frumkóða]

Ytri tenglar

[breyta | breyta frumkóða]