Fljótshlíð
Fljótshlíð er sveit í Rangárvallasýslu. Fyrir vestan hana er hinn forni Hvolhreppur, að sunnan Vestur- og Austur-Landeyjar og að suðaustan Vestur-Eyjafjallasveit. Fljótshlíðarhreppur náði yfir Fljótshlíð en hefur verið lagður niður sem sérstakt sveitarfélag. Löngum voru tvö prestaköll í Fljótshlíð. Annað var nefnt Fljótshlíðarþing, helstu kirkjur í Teigi, í Eyvindarmúla og á Hlíðarenda. Hitt prestakallið var kennt við Breiðabólstað, og undir það féllu að fornu annexíurnar Lambey, Ey, Þorvarðsstaðir og Vellir, auk bænhúss í Vatnsdal. Frá 1880 lögðust Fljótshlíðarþing undir Breiðabólstað.[1]
Fjölmargar jarðir í Fljótshlíð eru nú að öllu leyti eða hluta í eigu efnamanna af höfuðborgarsvæðinu sem sumir eru búsettir þar allt árið en aðrir eru þar eingöngu um helgar eða í leyfum. Á fæstum þessara jarða er rekinn hefðbundinn búskapur þótt sumir séu þar með hesta. Nú eru hátt á annað hundrað sumarbústaðir í Fljótshlíð.[2]
Bæjatal á 20. öld, frá austri til vesturs
[breyta | breyta frumkóða]- Fljótsdalur
- Fljót
- Barkarstaðir
- Háimúli
- Árkvörn
- Eyvindarmúli
- Múlakot
- Hlíðarendakot
- Nikulásarhús
- Hlíðarendi
- Hallskot
- Rauðuskriður
- Þverá
- Deild
- Valstrýta
- Heylækur
- Teigur
- Butra
- Smáratún
- Miðkot
- Bollakot
- Hellishólar
- Grjótá
- Arngeirsstaðir
- Tungukot
- Kirkjulækur
- Kirkjulækjarkot
- Lambalækur
- Hlíðarból
- Kvoslækur
- Ormskot
- Litli-Kollabær
- Stöðlakot
- Kollabær
- Tumastaðir
- Tunga
- Vatnsdalur
- Höfði
- Torfastaðir
- Kotmúli
- Fagrahlíð
- Sámsstaðir
- Árnagerði
- Ásvöllur
- Breiðabólstaður
- Bjargarkot
- Lambey
- Staðarbakki
- Aurasel
- Flókastaðir
- Núpur
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Sveinn Níelsson: Prestatal og prófasta á Íslandi, 2. útgáfa (Hannes Þorsteinsson jók við og Björn Magnússon gaf út), bls. 58-59, Reykjavík 1950.
- ↑ „Burt úr borgarskarkala“. Morgunblaðið, 1. september 2002.
Ítarefni
[breyta | breyta frumkóða]- Oddgeir Guðjónsson: „Fljótshlíð“, Sunnlenskar byggðir IV, Búnaðarsamband Suðurlands 1982.