Fjölsykra
Útlit
(Endurbeint frá Flókin kolvetni)
Fjölsykra eða flókin kolvetni er sykra gerð úr tíu eða fleiri einingum, oftast mörg hundruðum eða þúsundum. Fjölsykrur eru oft bragðlitlar og leysast illa í vatni. Sykrur myndast við ljóstillífun og plöntur geyma næringarforða sem fjölsykruna mjölva sem er gerð úr mörg þúsund glúkósaeiningum. Beðmi er einnig fjölsykra úr mörgum glúkósaeiningum. Lítið er um sykrur í dýraafurðum. Helsta dýrasykran er glýkógen sem er fjölsykra úr glúkósa og finnst í lifur og vöðvum. Kítín er fjölsykra sem að er að finna í stoðgrind margra skordýra, áttfætlna og frumuveggjum sveppa.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Fjölsykra.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Fjölsykra.