Fjallafræhyrna
Útlit
Fjallafræhyrna | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Cerastium arcticum Lge. |
Fjallafræhyrna (fræðiheiti: Cerastium arcticum) er fjölær jurt sem vex á norðurslóðum. Hún vex í klösum í möl. Hún blómstrar í júlí-ágúst hvítum blómum sem sitja eitt á hverjum stilk. Blómin eru með fimm hálfklofin krónublöð.
Fjallafræhyrna vex um allt land en er algengari á hálendi ofan við 700 metra.[1]
Á Íslandi er fjallafræhyrna þekktur hýsill fyrir sveppinn fræhyrnublaðmyglu.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Flóra Íslands (án árs). Fjallafræhyrna - Cerastiu nigrescens var. laxum. Sótt þann 12. febrúar 2019.
- ↑ Helgi Hallgrímsson & Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir (2004). Íslenskt sveppatal I - smásveppir. Geymt 17 október 2020 í Wayback Machine Fjölrit Náttúrufræðistofnunar. Náttúrufræðistofnun Íslands. ISSN 1027-832X
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Fjallafræhyrna.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Cerastium arcticum.