ACF Fiorentina
ACF Fiorentina SpA | |||
Fullt nafn | ACF Fiorentina SpA | ||
Gælunafn/nöfn | Viola (fjólublár) Gigliati (liljur) | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | Fiorentina | ||
Stofnað | 26. ágúst, 1926 (AC Fiorentina) 2002 (ACF Fiorentina) | ||
Leikvöllur | Artemio Franchi-leikvangurinn, Flórens, Ítalíu | ||
Stærð | 47.282 | ||
Stjórnarformaður | Rocco Commisso | ||
Knattspyrnustjóri | Raffaele Palladino | ||
Deild | Ítalska A-deildin | ||
2023/24 | 8. | ||
|
ACF Fiorentina er ítalskt knattspyrnulið frá Flórens í Toskana. Liðið hefur verið keppt í efri deildum ítalskrar knattspyrnu frá stofnun þess 1926. Það hefur unnið ítölsku úrvalsdeildina (Serie A) tvisvar: 1956 og 1969, og sex sinnum orðið bikarmeistarar, síðast árið 2001.
Heimabúningur Fiorentina er fjólublár og liðið er því oft kallað la Viola („sú fjólubláa“). Heimaleikvangur liðsins er Artemio Franchi-leikvangurinn í hverfinu Campo di Marte í Flórens.
Í kjölfar ítalska úrvaldsdeildarhneykslisins 2006 voru dregin 30 stig af þeim. Á næstu leiktíð byrjaði félagið með nítján stig í mínus sem síðar var breytt í fimmtán stig. Þrátt fyrir að hefja þannig leiktímabilið tókst liðinu að tryggja sér sæti í Evrópubikarnum næsta ár.
Albert Guðmundsson spilar með liðinu frá 2024.