FK Partizan
Фудбалски клуб Партизан Fudbalski (Knattspyrnufélagið Partizam) | |||
Fullt nafn | Фудбалски клуб Партизан Fudbalski (Knattspyrnufélagið Partizam) | ||
Gælunafn/nöfn | Црно-бели / Crno-beli (Þeir Svart-Hvítu) | ||
---|---|---|---|
Stytt nafn | Partizan | ||
Stofnað | 4.október 1945 | ||
Leikvöllur | Rajko Mitić leikvangurinn(Belgrad) | ||
Stærð | 55.538 | ||
Stjórnarformaður | Milorad Vučelić | ||
Knattspyrnustjóri | Savo Milošević | ||
Deild | Serbneska úrvalsdeildin | ||
2021-22 | 2. sæti | ||
|
Fudbalski klub Partizan (Serbneska:kyrillískt: icудбалски клуб Партизан, IPA: [fûdbalskiː klûːb partǐzaːn];), er serbneskt knattspyrnufélag með aðsetur í Belgrad. Félagið leikur í serbnesku úrvalsdeildinni SuperLiga og hefur varið allri sögu sinni í efstu deild júgóslavnesku og serbnesku deildarinnar.
Partizan var stofnað af yfirmönnum Júgóslavíu lýðveldishersins (JNA) árið 1945 í Belgrad, sem hluti af júgóslavneska íþróttasambandinu Partizan. Heimavöllur þess er Partizan-leikvangurinn í Belgrad, þar sem þeir hafa spilað síðan 1949. Partizan var fyrsta knattspyrnufélagið á Balkanskaga og Austur-Evrópu sem komst í úrslit Meistaradeildar Evrópu, það gerðist árið 1966. Partizan var einnig fyrsta serbneska félagið sem keppti í riðlakeppni Meistaradeildar UEFA.
Félagið á sér langa sögu samkeppni gegn nágrönnum sínum í Rauðu stjörnunni. Leikir þessara tveggja liða eru þekktir sem hin eilífi rígur („Večiti derbi“) og er af mörgum taldir vera einn hatramasti nágrannarígur í heimi. Í september 2009 skipaði breska dagblaðið Daily Mail Red Derby-Partizan nágrannaslagnum í fjórða sæti meðal tíu stærstu nágrannaríga allra tíma. Partizan á einnig marga stuðningsmenn í öllum löndum fyrrverandi lýðvelda Júgóslavíu.
Uppeldisstarf Partizan er einnig þekkt fyrir að ala af sér marga af bestu knattspyrnumönnum Evrópu.