Fara í innihald

Elsa Lára Arnardóttir

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Elsa Lára Arnardóttir (ELA)

Elsa Lára Arnardóttir

Fæðingardagur: 30. desember 1975 (1975-12-30) (48 ára)
6. þingmaður Norðvesturkjördæmis
Flokkur: Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn
Nefndir: Allsherjar- og menntamálanefnd 2013-2015

Stjórnskipunar og eftirlitsnefnd 2015-2016 Efnahags- og viðskiptanefnd 2016-2017 Veflerðarnefnd 2015-2016, 2017-

Þingsetutímabil
2013-2017 í Norðvest. fyrir Framsfl.
= stjórnarsinni
Embætti
2013-2016 Formaður Íslandsdeildar þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu 2013-2016
Tenglar
Æviágrip á vef Alþingis

Elsa Lára Arnardóttir (f. 30. desember 1975) er fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins. Hún sat á Alþingi fyrir Norðvesturkjördæmi frá 2016-2017. Elsa er gift Rúnari Geir Þorsteinssyni rafiðnfræðingi og eiga þau tvö börn.

Elsa Lára lauk stúdentsprófi frá FVA og er með B.Ed.- grunnskólakennarapróf KHÍ 2005. Hún hefur starfað við fiskvinnslu, verið ritari og leiðbeinandi í grunnskóla, fulltrúi Tryggingastofnunar ríkisins, grunnskólakennari við Brekkubæjarskóla og Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit.

Hún var varabæjarfulltrúi í bæjarstjórn Akraness, sat í fulltrúaráði Heimilis og skóla, í stjórn Akranesstofu, varamaður í fjölskyldu- og bæjarráði Akraness og sat í forystu fyrir foreldrahóp foreldra einhverfra barna á Akranesi og nágrenni.

Elsa Lára hefur setið í allsherjar- og menntamálanefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, velferðarnefnd og verið formaður Íslandsdeildar þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Hún sat einnig í efnahags- og viðskiptanefnd 2016-2017.

  Þessi æviágripsgrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.