Eiðar
Eiðar er þéttbýliskjarni staðsettur um 10 km norðan við Egilsstaði. Þar búa um 40 manns. Eiðar tilheyra Múlaþingi.
Eiðaskóli
[breyta | breyta frumkóða]Á Eiðum var stofnaður búnaðarskóli árið 1883. Hann starfaði til 1919. Þá var honum breytt í alþýðuskóla, sem starfaði til 1998, en þá tók Menntaskólinn á Egilsstöðum endanlega yfir starfsemi Eiðaskóla. Hafði skólinn þá verið rekinn sem útibú frá Menntaskólanum í nokkur ár. Helstu byggingar staðarins tengjast skólastarfinu og eru teiknaðar af þekktum íslenskum arkitektum, eins og Guðjóni Sigvaldasyni, Rögnvaldi Ólafssyni og Sigvalda Thordarsyni.
Útvarpið
[breyta | breyta frumkóða]Á Eiðum var 220 metra hátt mastur sem var notað af Ríkisútvarpinu til að senda á 207 kHz eða AM. Það var 100 kW. (Hinn langbylgjusendirinn er á Gufuskálum.) Mastrið var reist á árunum 1996 til 1998 og fellt 1. mars 2023.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Eiðavinir: Eiðar fyrr á tíð. Geymt 24 október 2020 í Wayback Machine
- Karolinafund: Saga Eiðaskóla.
- Eiðaskóli verður óperuhús.
- Eiðar á Fljótsdalshéraði auglýst til sölu. Geymt 24 febrúar 2020 í Wayback Machine
- Eiðaskóli tuttugu ára; Hannes J. Magnússon, Viðar janúar 1942, bls. 26–31.