Domino's Pizza
Domino's Pizza, Inc. oftast kallað Domino's er bandarísk skyndibitakeðja sem að selur pítsur. Keðjan var stofnuð árið 1960 þegar að bræðurnir Tom og James Monaghan tóku yfir rekstur DomiNick's, lítillar pítsustaðakeðju sem að hafði verið í eigu Dominick DiVarti. Fyrirtækið hefur höfuðstöðvar í Michiganríki. Domino's rekur yfir 5 þúsund útibú í 83 löndum.[1]
Dominos á Íslandi
[breyta | breyta frumkóða]Fyrsta verslun Dominos Pizza á Íslandi var opnuð þann 16. ágúst 1993 að Grensásvegi 11 í Reykjavík.[2] Domino’s Pizza rekur 22 verslanir hér á landi. Tíu þeirra eru í Reykjavík, tvær í Kópavogi, Hafnarfirði og Reykjanesbæ og ein í Garðabæ, Mosfellsbæ, Akureyri, Akranesi og Selfossi. Auk þessara verslana rekur Dominos hráefnavinnslu og birgðastöð fyrir verslanir fyrirtækisins og þjónustuver.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Domino's Home Page - Domino's Pizza, Order Pizza Online for Delivery - Dominos.com“. www.dominos.com. Sótt 4. ágúst 2024.
- ↑ „Domino's Pizza“. Domino's Pizza. Sótt 30. október 2019.