Dolly
Dolly eða Dollý (5. júlí 1996 – 14. febrúar 2003) var sauðkind og fyrsta klónaða spendýrið. Dollý var klónuð í Roslin-stofnuninni í Edinborg, Skotlandi og ól þar sína ævi.[1]
Ævi Dollýar
[breyta | breyta frumkóða]Burðurinn
[breyta | breyta frumkóða]Fruman, sem Dollý var klónuð úr, var tekin úr júgra 6 ára gamallar finnskrar Dorset-kindar.[2] Dollý var eina tilraunin til klónunar sem tókst af samtals 277 tilraunum, sem Roslin-stofnunin framkvæmdi á sauðfé.[3] Fæðing hennar var ekki kynnt fyrr en í febrúar 1997.
Dauðinn
[breyta | breyta frumkóða]Dollý dó 14. febrúar 2003 af mæðiveiki (votamæði)[1] og þann 9. apríl 2003 var hún stoppuð upp og sett til sýnis á Royal-safninu í Edinborg.
Nafnið
[breyta | breyta frumkóða]Kindin Dollý gekk upprunalega undir dulnefninu 6LL3. Einn aðilanna, sem aðstoðaði við burð kindarinnar, stakk upp á nafninu „Dolly“ í höfuðið á hinni brjóstamiklu kántrísöngkonu Dolly Parton, þar sem fruman, sem Dollý var klónuð úr, kom úr júgra móður hennar.[4][5]
Hagur af tilrauninni
[breyta | breyta frumkóða]Eftir Dollý hefur orðið ör þróun á sviði klónana. Vísindamenn Roslin-stofnunarinnar hafa síðar klónað stærri spendýr, þ.á m. hesta og nautgripi.[6] Hugmyndir eru um að nota klónun í framtíðinni til að bjarga dýrum í útrýmingarhættu.[7]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 "First cloned sheep Dolly dies at 6", CNN.com, 14. febrúar 2003.
- ↑ Campbell, K.H.S., McWhir, J., Ritchie, W.A. and Wilmut, A. (1996). "Sheep cloned by nuclear transfer from a cultured cell line". Nature 380 (6569): 64-66.
- ↑ „Research in the News: Creating a Cloned Sheep Named Dolly“ Geymt 4 júlí 2007 í Wayback Machine, science-education.nih.gov , 4. júlí 2007
- ↑ "Listen to public, says Dolly scientist", BBC News. 2000.
- ↑ „Dolly was world's hello to cloning's possibilities“. Sótt 20. nóvember 2007.
- ↑ Lozano, Juan A. (27. júní 2005). A&M Cloning project raises questions still Geymt 30 september 2007 í Wayback Machine. Bryan-College Station Eagle. Sótt 30. apríl 2007
- ↑ „Texas A&M scientists clone world’s first deer Geymt 11 nóvember 2006 í Wayback Machine“, Innovations Report, 23. desember 2003. Sótt 1. janúar 2007.