Dofri Hermannsson
Dofri Hermannsson (f. 25. september 1969) er íslenskur leikari, hagfræðingur og náttúruverndarsinni. Hann sat í stjórn Náttúruverndarsamtaka Íslands á árunum 2001-2005, var varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar 2006-2010 en hætti þá afskiptum af stjórnmálum. Hann er með meistapróf í hagnýtri hagfræði við Háskólann á Bifröst með áherslu á umhverfishagfræði, nýsköpun og svæðahagfræði. Hann stýrði stefnumótun Samfylkingarinnar í umhverfismálum, nýsköpunarmálum og byggðamálum fyrir alþingiskosningar 2007 og 2009, var fyrsti starfsmaður Hátækni- og sprotavettvangs (samstarfsverkefni stjórnarráðsins og Samtaka Iðnaðarins) sem kom mikilvægum stuðningasaðgerðum fyrir nýsköpunarfyrirtæki í framkvæmd.
Dofri rekur ferðaþjónustufyrirtækið Reykjavik erupts sem sérhæfir sig í ferðum sem tengjast jarðfræði og eldgosum.
Ferill í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
[breyta | breyta frumkóða]Ár | Kvikmynd/Þáttur | Hlutverk | Athugasemdir og verðlaun |
---|---|---|---|
1987 | Áramótaskaupið 1987 | ||
1998 | Sporlaust | Beggi | Kvikmynd eftir Hilmar Oddsson |
Dansinn | Haraldur | Tilnefndur til Eddunar sem leikari ársins. | |
1999 | Dagurinn í gær | Dagfinnur | Sjónvarpsþáttaröð á Rúv |
2016 | Réttur 3 (TV) | Benedetto | Sjónvarpsþáttaröðin fékk fjölda viðurkenninga um allan heim |
2016 | Grimmd |