Charles Babbage
Útlit
Charles Babbage (26. desember 1791 – 18. október 1871) var enskur stærðfræðingur. Nú er hann þekktastur fyrir að hafa verið upphafsmaður reiknivéla, sem leiddu til tölva nútímans. Hann hannaði reiknivél, sem hann kallaði „Analytical engine“ en tókst ekki að ljúka smíði hennar, meðal annars vegna fjárskorts. Vinkona hans og samstarfsmaður var Ada Lovelace, dóttir Byrons lávarðar, og er hún talin fyrsti forritarinn.