Selaætt
Útlit
(Endurbeint frá Brimill)
Selaætt | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Ættkvíslir | ||||||||||||
Selaætt eða eiginlegir selir (fræðiheiti: Phocidae) eru ein af þremur ættum hreifadýra (Pinnipedia). Þeir eru betur aðlagaðir lífi í vatni en eyrnaselir (sæljón og loðselir), en um leið eru þeir minna hæfir til að ferðast um á landi þar sem afturhreifar þeirra eru gagnslitlir sem gangfæri.
Algengustu selategundirnar við Íslandsstrendur eru landselur og útselur.
Heiti
[breyta | breyta frumkóða]Urta (einnig nefnd kæpa, sem bæði getur átt við urtu með eða án kóps) er kvendýr sels. Karldýrið nefnist brimill og afkvæmin nefnast kópar. Skerjakolla eða skerjakollur er selur sem sækir árlega í sömu skerin.