Bob Starr
Persónulegar upplýsingar | |
---|---|
Fæðingardagur | s.1950 |
Þjóðerni | Bandarískur |
Liðsferill | |
Sem þjálfari: | |
1979–1980 | Ármann |
1979–1980 | Fram |
1980 | Skallagrímur (aðst.þj.) |
Verðlaun og viðurkenningar | |
|
Robert "Bob" Starr er bandarískur körfuknattleiksþjálfari og umboðsmaður sem stóð fyrir komu margra af fyrstu bandarísku körfuknattleiksmönnunum sem spiluðu á Íslandi undir lok áttunda áratugarins og byrjun þess níunda, þar á meðal Jimmy Rogers, Curtis Carter og fyrrum ABA stjarnan Stew Johnson.[1][2]
Æska
[breyta | breyta frumkóða]Starr ólst upp í Houston í Bandaríkjunum.[3]
Þjálfaraferill
[breyta | breyta frumkóða]Árið 1979 var Starr ráðinn þjálfari Ármanns sem þá var í næst efstu deild. Þrátt fyrir mikið brotthvarf af lykilmönnum[4] þá stýrði hann liði Ármanns til sigurs í deildinni og kom þeim aftur í Úrvalsdeild.[5] Samhliða þjálfun Ármanns, þá tók Starr tímabundið við Fram í Úrvalsdeild karla í desember 1979, eftir að John Johnson hvarf á braut.[6] Hann stýrði liðinu fram í janúar 1980.[7] Hann stýrði Ármanni áfram í Úrvalsdeildinni í byrjun 1980-81 tímabilsins.[5] Eftir brösuga byrjun þá var Starr rekinn um miðjan nóvember.[8] Í kjölfarið aðstoðaði hann Ívar DeCarsta Webster, spilandi þjálfara Skallagríms, í nokkrum leikjum.[9] Í kjölfar veru sinnar á Íslandi hélt Starr til Danmerkur[10] áður en hann hélt áfram þjálfaraferli sínum í bandaríkjunum.[11]
Titlar
[breyta | breyta frumkóða]- 1. deild karla: 1980
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Guðjón Arngrímsson (21. september 1979). „Að selja fólk“. Helgarpósturinn. Sótt 6. júní 2019.
- ↑ Henry Birgir Gunnarsson (27. nóvember 2024). „Umboðsmaðurinn sérstaki sem kom með fyrstu Kananna til landsins“. Vísir.is. Sótt 27. nóvember 2024.
- ↑ Dick Harmon (13. júní 1982). „The "Starr of the show" waits for new curtain call“. The Daily Herald. Sótt 28. janúar 2020.
- ↑ Gylfi Kristjánsson (18. september 1979). „Ármenningar í vandræðum“. Vísir. Sótt 6. júní 2019.
- ↑ 5,0 5,1 Gylfi Kristjánsson (29. október 1980). „"Starrinn" er kominn“. Vísir. Sótt 6. júní 2019.
- ↑ „Bob Starr til Fram“. Tíminn. 8. desember 1979. Sótt 6. júní 2019.
- ↑ „Bob Starr hættur hjá Fram“. Tíminn. 21. janúar 1980. Sótt 6. júní 2019.
- ↑ „Bob Starr rekinn“. Tíminn. 19. nóvember 1980. Sótt 6. júní 2019.
- ↑ „Starr í sviðsljósinu í Borgarnesi“. Vísir. 24. nóvember 1980. Sótt 6. júní 2019.
- ↑ „"Starrinn" sækir Dani heim“. Vísir. 5. maí 1981. Sótt 6. júní 2019.
- ↑ T.R. Dowell (7. mars 1984). „Youngsters, pros alike heed court 'Starr'“. The Salt Lake Tribune. Sótt 28. júní 2020.