Blönduð beyging
Útlit
(Endurbeint frá B.b.)
Blönduð beyging (skammstafað sem b.b.) er hugtak í málfræði.
Blönduð beyging í íslensku
[breyta | breyta frumkóða]Blandaðar sagnir
[breyta | breyta frumkóða]Blandaðar sagnir er ein af þremur tegundum sagna eftir því hvernig þær geta skipst eftir sagnbeyging (hinar tvær eru veikar sagnir og sterkar sagnir). Blönduð beyging er þegar sagnir eru hvorki veikar né sterkar (eða að sumu leyti veikar og öðru leyti sterkar). Blönduð beyging er tvenns konar:
- ri-sagnir sem mynda þátíð eintölu með endingunni -ri (neri, greri, sneri o.s.fv.) hafa endingu og tvö atkvæði í þátíð.
- gróa → greri → gróið
- róa → reri → róið
- snúa → sneri → snúið
- núa → neri → núið
- Núþálegar sagnir mynda nútíð eins og sterkar sagnir mynda þátíð en hafa sams konar þátíð og veikar sagnir. Sögnin vita (veit, vissi) er núþáleg sögn á meðan líta (leit, litum, litið) er sterk sögn. Núþálegu sagnirnar eru 11:
- unna - ann - unni - unnað
- kunna - kann - kunni - kunnað
- muna - man - mundi - munað
- eiga - á - átti - átt
- knega - kná - knátti - knátt
- mega - má -mátti - mátt
- þurfa - þarf - þurfti - þurft
- vita - veit - vissi - vitað
- vilja - vil - vildi - viljað
- munu - mun - mundi - (ekki til í lýsingarhætti þátíðar)
- skulu - skal - skyldi - (ekki til í lýsingarhætti þátíðar)