Fara í innihald

Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness voru stofnuð af bókaútgáfunni Vaka-Helgafell árið 1995 í samráði við fjölskyldu skáldsins. Megintilgangur verðlaunanna var að efla íslenskan sagnaskáldskap og stuðla þannig að endurnýjun íslenskrar frásagnalistar. Verðlaunin voru veitt árlega að hausti og kom verðlaunabókin út sama dag hjá Vöku - Helgafelli. Samkeppnin var öllum opin og verðlaunin veitt fyrir nýja og áður óbirta skáldsögu eða smásagnasafn.

Verðlaunahafar

[breyta | breyta frumkóða]
Ár Verðlaunahafi Verk
1996 Skúli Björn Gunnarsson Lífsklukkan tifar: smásögur
1997 Eyvindur Eiríksson Landið handan fjarskans
1998 Sindri Freysson Augun í bænum
1999 Engin verðlaun veitt
2000 Gyrðir Elíasson Gula húsið
2001 Bjarni Bjarnason Mannætukonan og maður hennar
2002 Ari Trausti Guðmundsson Vegalínur
2003
2004 Gerður Kristný Bátur með segli og allt

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness

[breyta | breyta frumkóða]
Ár Verðlaunahafi
2019 Ian McEwan
2020
2021 Elif Shafak
2022 Andrej Kúrkov
2024 Salman Rushdie