Óðinn syngur vinsæl lög
Útlit
Óðinn syngur. | |
---|---|
45-2005 | |
Flytjandi | Óðinn Valdimarsson og Atlantic kvartettinn |
Gefin út | 1960 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Óðinn syngur er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1960. Á henni flytur Óðinn Valdimarsson tvö lög ásamt Atlantic kvartettinum. Kvartettinn skipuðu Finnur Eydal, saxófónn, klarinett, bongótromma, Ingimar Eydal, píanó, Edwin Kaaber, gítar og Sveinn Óli Jónsson, trommur. Helena Eyjólfsdóttir lék á marakas í Einsa kalda úr Eyjunum. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Einsi kaldi úr Eyjunum - Lag og texti: Jón Sigurðsson - ⓘ
- Magga - Lag - texti: Conrad, Robinson - Jón Sigurðsson - ⓘ
Lögin komu bæði út á EXP-IM 69 en voru endurútgefin á þessari plötu.