Fara í innihald

Æðahellir

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Æðahellir

Æðahellir er íslenskur hellir í Vestmannaeyjum. Í Eyjablaðinu 1962 segir svo frá Æðahelli:

Vestan Vatnshella tekur við Æðasandur, en það er hóflaga vik með háum hömrum á alla vegu og er sandur innst í vognum. Af þessum sandi má svo ganga í einn af skemmtilegustu hellum Eyjanna — Æðahelli. Eru á honum tvö op, veit annað út á sandinn, en hitt til hafs. Inni í helli þessum er há hvelfing og tignarleg og munu fáir sjá eftir því, er lagt hafa leið sína þangað. [1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Minningar úr Eyjum; grein í Eyjablaðinu 1962
  Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.