Úrsmiður
Útlit
Úrsmiður er iðnaðarmaður sem framleiðir og setur saman ný úr en viðheldur og gerir líka við biluð úr og klukkur. Úrsmíði er lögvernduð iðngrein.
Nám
[breyta | breyta frumkóða]Námið tekur 4 ár. Ekki er hægt að læra úrsmíði á Íslandi nema að hluta. Nemar eru á iðnsamningi hjá úrsmíðameistara en sækja bóklegt og verklegt nám í úrsmíðaskólum erlendis. Flestir íslenskir úrsmiðir hafa sótt nám á danska úrsmíðaskólann í Ringsted í Danmörku allt í allt 80 vikur.
Góður úrsmiður þarf að hafa eftirfarandi til að bera: Góða sjón og nákvæm vinnubrögð, þar sem verkefnið sem unnið er með er oftar en ekki frekar smátt.
Í námi er áhersla lögð á:
- Málmsmíði til að smíða verkfæri og varahluti
- Viðgerð á úrum og klukkum
- Fagteikning
- Rafmagnsfræði
- Sölutækni
- Gluggaútstilling
- Bókfærsla