Yoho-þjóðgarðurinn
Útlit
Yoho-þjóðgarðurinn (enska: Yoho National Park) er þjóðgarður í Klettafjöllum Bresku Kólumbíu. Hann var stofnaður árið 1886 og er stærð hans 1313 ferkílómetrar. Yoho er orð úr Cree-tungumálinu yfir undur. Samliggjandi þjóðgarðar eru Kootenay-þjóðgarðurinn í suðri og Banff-þjóðgarðurinn (í Alberta-fylki) í norðri.
Meðal áhugaverðra staða í Yoho-þjóðgarði eru The Kicking Horse-fljót þar sem er náttúruleg steinbrú, Emerald-vatn, Takakkaw-foss og Wapta-foss. Hæsta fjallið er Mount Goodsir (3567 metrar).
Tengill
[breyta | breyta frumkóða]Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Yoho-þjóðgarðurinn.
Fyrirmynd greinarinnar var „Yoho National Park“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 19. des. 2016 2016.