Fara í innihald

Verkamannaflokkurinn (Ástralía)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Verkamannaflokkurinn
Labor Party
Leiðtogi Anthony Albanese
Varaleiðtogi Richard Marles
Forseti Wayne Swan[1]
Ritari Paul Erickson
Þingflokksformaður Penny Wong
Stofnár Elstu deildir: 1891; fyrir 133 árum (1891)
Á landsvísu: 8. maí 1901; fyrir 123 árum (1901-05-08)
Höfuðstöðvar Barton, Höfuðborgarsvæði Ástralíu
Félagatal 60.085 (2020)[2]
Stjórnmálaleg
hugmyndafræði
Jafnaðarstefna
Einkennislitur Rauður  
Sæti á fulltrúadeild
Sæti á öldungadeild
Vefsíða www.alp.org.au

Ástralski verkamannaflokkurinn (e. Australian Labor Party; gjarnan skammstafað ALP[3]) er ástralskur stjórnmálaflokkur sem kennir sig við jafnaðarstefnu. Flokkurinn er aðili að Framfarabandalaginu og var aðili að Alþjóðasambandi jafnaðarmanna frá 1966 til 2014.

Verkamannaflokkurinn rekur uppruna sinn til verkalýðshreyfinga sem stofnaðar voru á tíunda áratugi 19. aldar í nýlendunum sem urðu síðar að ástralska samveldinu, sér í lagi í Nýja-Suður-Wales og Queensland. Það var í Queensland sem Anderson Dawson, leiðtogi verkalýðshreyfingannaí nýlendunni, stofnaði fyrstu ríkisstjórn jafnaðarmanna í sögunni. Sú stjórn var minnihlutastjórn og entist aðeins í eina viku. Stofnun Verkamannaflokksins er miðuð við 8. maí 1901, en þá fundaði „þingflokkur“ þeirra (þ.e. fulltrúar verkamanna á ástralska þinginu) í fyrsta sinn.

Leiðtogar Verkamannafloksins

[breyta | breyta frumkóða]

Leiðtogar Verkamannaflokksins frá stofnun hans hafa verið:

Nafn Ár
Chris Watson 1901–1908
Andrew Fisher 1908–1915
Billy Hughes 1915–1916
Frank Tudor 1916–1922
Mathew Charlton 1922–1928
James Scullin 1928–1935
John Curtin 1935–1945
Ben Chifley 1945–1951
Dr H.V. Evatt 1951–1960
Arthur Calwell 1960–1967
Gough Whitlam 1967–1977
Bill Hayden 1977–1983
Bob Hawke 1983–1991
Paul Keating 1991–1996
Kim Beazley 1996–2001
Simon Crean 2001–2003
Mark Latham 2003–2005
Kim Beazley 2005–2006
Kevin Rudd 2006–2010
Julia Gillard 2010–2013
Kevin Rudd 2013
Bill Shorten 2013-2019
Anthony Albanese 2019-

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. „National Executive“. Australian Labor Party. Sótt 30. september 2021.
  2. Davies, Anne (13. desember 2020). „Party hardly: why Australia's big political parties are struggling to compete with grassroots campaigns“. The Guardian (enska). Sótt 13. desember 2020.
  3. „Political party name abbreviations & codes, demographic ratings and seat status“. aec.gov.au (enska). Kjörstjórn Ástralíu. Sótt 22. maí 2022.
  Þessi Ástralíugrein sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.