Fara í innihald

Valgarður Guðjónsson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Valgarður Þórir Guðjónsson (fæddur 8. febrúar 1959) (betur þekktur sem Valli í Fræbbblunum) er íslenskur tónlistarmaður og aðalsöngvari hljómsveitarinnar Fræbbblanna. Valgarður er giftur Iðunni Briem sálfræðingi og söngkonu Fræbbblanna og börn þeirra eru Alexandra Briem borgarfulltrúi í Reykjavík, Guðjón Heiðar Valgarðsson hlaðvarpsstjórnandi og Viktor Orri Valgarðsson stjórnmálafræðingur.