Hér fyrir neðan má finna þær greinar sem ég hef stofnað og/eða fylgist með. Ef til vill eru sumar þeirra örlítið fátæklegar en ég ákvað að búa fyrst til beinagrind sem ég mundi svo setja kjöt á eftir því sem að tími gefst.
Þar að auki hef ég unnið eitthvað með að búa til snið, t.d. fyrir íþróttafélög, en mig langar að á endanum notist allar greinar um íþróttafélög þetta snið:
Ég hef einnig mikið unnið við flokkun og hef t.d. tekið Íþróttaflokkinn og helstu undirflokka hans í gegn en þar er þó töluverð vinna eftir. Eftir að íþróttaflokkarnir eru komnir í ágætt horf hafði ég hugsað mér að flokka tónlistarflokkana betur en þar er allt á rúi og stúri.