Fara í innihald

Talmúð

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Talmúd)
Talmúðskólinn, málverk eftir Samuel Hirszenberg frá um 1895-1908.

Talmúð (hebreska: תַּלְמוּד Talmūḏ „nám“) er eitt helstu helgirita gyðingdóms á eftir Hebresku Biblíunni.[1][2][3][4] Talmúð er lögskýringarit í formi samræðna sem fara rabbínum á milli og fjalla um lög Gyðinga, siðareglur þeirra, siði og sögu. Talmúð er helsta heimildin um lög Gyðinga (הֲלָכָה Halakha) og guðfræði gyðinga.[5][6][7][8] Helstu hlutar Talmúð eru kennisetningar úr munnlegri geymd (Mishnah) og greiningar og athugasemdir rabbína við þær (Gemara). Talmúðinn geymir þannig rökræður þúsunda ólíkra rabbína og lögspekinga um alls kyns efni á borð við lög, siðfræði, heimspeki, hefðir, sögu og alþýðumenningu, meðal annars. Þar til Haskalah-hreyfingin kom fram undir lok 18. aldar var Talmúð miðlægur í allri menningu Gyðinga, undirstaða samfélags þeirra og leiðarvísir í daglegu lífi.[9]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ Stefán Jónsson og Ulrika Andersson (13.11.2018). „Hvað er Talmúð?“. Vísindavefurinn.
  2. ↑ „BBC - Religions - Judaism: The Torah“. www.bbc.co.uk (bresk enska). Sótt 1 október 2025.
  3. ↑ Youvan, Douglas C (ágúst 2024). „Torah vs. Talmud: Divergent Paths in Jewish Thought and Practice Across Sects and Cultures“. ResearchGate. doi:10.13140/RG.2.2.17472.14082.
  4. ↑ „Tanakh | Sefaria“. www.sefaria.org. Sótt 1 október 2025.
  5. ↑ Fishman, Talya (2011). Becoming the People of the Talmud: Oral Torah as Written Tradition in Medieval Jewish Cultures. University of Pennsylvania Press. ISBN 978-0-8122-4313-0.
  6. ↑ Neusner, Jacob (2003). The Formation of the Babylonian Talmud. Wipf and Stock Publishers. bls. ix. ISBN 9781592442195.
  7. ↑ Steinsaltz, Adin (1976). The Essential Talmud. BasicBooks. bls. 3. ISBN 978-0-465-02063-8.
  8. ↑ Steinberg, Paul; Greenstein Potter, Janet (2007). Celebrating the Jewish Year: The Fall Holidays: Rosh Hashanah, Yom Kippur. The Jewish Publication Society. bls. 42. ISBN 9780827608429.
  9. ↑ Safrai, S. (1969). „The Era of the Mishnah and Talmud (70–640)“. Í Ben-Sasson, H.H. (ritstjóri). A History of the Jewish People. Þýðing eftir Weidenfeld, George. Harvard University Press (gefið út 1976). bls. 379. ISBN 9780674397316.
  Þessi sögugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.