Kristín Ólafsdóttir (1968)
Útlit
(Endurbeint frá T 103)
Kristín Ólafsdóttir | |
---|---|
T 103 | |
Flytjandi | Kristín Ólafsdóttir |
Gefin út | 1968 |
Stefna | þjóðlagasöngur |
Útgefandi | Tónaútgáfan |
Kristín Ólafsdóttir er 45-snúninga hljómplata gefin út af Tónaútgáfunni árið 1968. Á henni flytur Kristín Ólafsdóttir fjögur lög. Platan er hljóðrituð í mono. Hljóðritun: Pétur Steingrímsson. Ljósmynd: Ljósmyndastofa Páls. Prentun umslags: Valprent hf. Akureyri.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Komu engin skip í dag - Lag - texti: Magnús Eiríksson
- Flóttamaðurinn - Lag - texti: Magnús Eiríksson
- Örlög mín - Lag - texti: Propp P. Cour - Jóhann Erlingsson
- Mamma ætlar að sofna - Lag - texti: Sigvaldi Kaldalóns - Davíð Stefánsson
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Kristín Ólafsdóttir er ung reykvísk stúlka, sem hefur síðastliðin tvö til þrjú ár vakið á sér athygli fyrir þjóðlagasöng. Hún hefur aðallega komið fram í Reykjavík, á árshátíðum og öðrum skemmtunum. Meðal annars skemmti hún um tíma með Ríó tríóinu á ýmsum stöðum. Á þessari fyrstu plötu Kristínar eru fjögur lög, eitt erlent og þrjú íslenzk. Útsetningar og hljómsveitarstjórn annaðist Sigurður Rúnar Jónsson. | ||
— NN
|
Komu engin skip í dag
[breyta | breyta frumkóða]- Um sólsetur í fjörunni
- á steini við röst er hún
- og bláum augum beinir
- út að hafsins ystu brún.
- Og fyrir munni sér hún tautar
- alltaf sama brag:
- Guð minn góður, komu engin skip í dag.
- Hún átti mann, sem sigldi sjó
- og færði fiskinn heim.
- Þeir fórust víst í óveðri
- við gleymdum ekki þeim.
- En síðan er hún undarleg
- og syngur þennan brag.
- Guð minn góður, komu engin skip í dag.
- Hún hefur árumsaman syrgt
- sinn horfna eiginmann,
- og sjáist sigla eitthvert skip
- hún heldur að það sé hann.
- Og allir hérnaí þorpinu
- nú þekkja þennan brag.
- Því lét guð minn ekki skipið koma í dag?