Túnfífill
Útlit
Túnfífill | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Túnfífill (efri mynd) og biðukolla (neðri mynd)
| ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||
Taraxacum officinale (L.) Weber ex F.H.Wigg. | ||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||
|
Túnfífill (fræðiheiti: Taraxacum spp. eða Taxacum officinale) er blómplanta og fífiltegund (Taraxacum) af körfublómaætt. Hann er algeng jurt á Íslandi og getur vaxið upp í 1000 m hæð yfir sjávarmáli. Hann skiptist í nokkrar tegundir. Eftir blómgun lokar fífillinn blómakörfunni og opnar hana svo aftur þegar fræin eru fullþroskuð og nefnist þá biðukolla. Fræ fífilsins eru með svifhár og geta borist langa leið. Rótin er stólparót. Afblómgaður fífill nefnist biðukolla (bifikolla eða bifukolla).
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Túnfífill.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist túnfíflum.
Wikilífverur eru með efni sem tengist túnfíflum.