Svavar Lárusson syngur
Útlit
Svavar Lárusson syngur | |
---|---|
EXP-IM 5 | |
Flytjandi | Svavar Lárusson, SY-WE-LA kvintettinn, Monty tríóið |
Gefin út | 1954 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Svavar Lárusson syngur er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1954. Á henni flytur Svavar Lárusson tvö lög með SY-WE-LA kvintettinum og tvö lög með Monty tríóinu. Platan er hljóðrituð í mono. Upptökur fóru fram hjá Norska útvarpinu og í Þýskalandi. Pressun: AS Nera í Osló. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Prentun: Alþýðuprentsmiðjan.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Fiskimannaljóð frá Capri - Lag - texti: Winkler - Friðjón Þórðarson - ⓘ
- Sólskinið sindrar - Lag - texti: Drake, Shirl - Ágústsson - ⓘ
- Húmsins skip - Lag - texti: Stan Jones - Loftur Guðmundsson
- Gleym mér ei - Lag - texti: Whitney, Kramer - Svavar Lárusson
Lögin á plötunni
[breyta | breyta frumkóða]Lögin komu áður út á 78 snúninga plötum hjá Íslenskum tónum. Lögin Sólskinið sindrar og Fiskimannaljóð frá Capri komu fyrst út árið 1952 á 78 snúninga plötunni IM 3, en hún var ein af þremur fyrstu plötum Íslenskra tóna sem settar voru á markað í nóvember 1952. Lögin eru því ein fyrstu íslensku danslögin til að koma út á plötu. Lagið Húmsins skip er sérstakt að því leyti að þar er Hammond orgel notað í fyrsta sinn á íslenskri plötu ásamt því að notast er við bergmál og aðra hljóðeffekta. Lögin Húmsins skip og Gleym mér ei voru tekin upp í Þýskalandi. | ||