Suðurlandsskjálfti
Suðurlandsskjálfti er jarðskjálfti á Suðurlandi sem er 6,0 stig eða meira, sem stafar af sniðgengishreyfingu á þröngu belti sem liggur frá Ölfusi austur að Vatnafjöllum. Við hreyfinguna bjagast jarðskorpan og spenna hleðst upp. Annað veifið losnar þessi uppsafnaða spenna úr læðingi í jarðskjálfta.
Síðasti Suðurlandsskjálfti varð þann 29. maí árið 2008 og mældist 6,2 stig en áður höfðu riðið yfir skjálftar þann 17. og 21. júní árið 2000 sem mældust 6,5 og 6,6 stig. Árið 1912 reið yfir Suðurland jarðskjálfti sem var 7,0 stig og árið 1896 urðu 5 skjálftar, 6,5-6,9 stig, á svæðinu frá Landsveit vestur í Ölfus.
Jarðskjálftaár á Suðurlandi skv. annálum: 1013 - 1164 - 1182 - 1211 - 1294 - 1308 - 1311 - 1339 - 1370 - 1389 - 1391 - 1546 - 1581 - 1613 - 1618 - 1624 - 1630 - 1633 - 1657 - 1658 - 1663 - 1671 - 1706 - 1732 - 1734 - 1749 - 1752 - 1754 - 1784 - 1789 - 1808 - 1828 - 1829 - 1896 - 1912 - 2000 - 2008
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Nánar um Suðurlandsskjálfa Geymt 16 maí 2008 í Wayback Machine
- „Hvenær kemur Suðurlandsskjálftinn?“. Vísindavefurinn.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Suðurlandsskjálfti; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1996 Geymt 5 mars 2016 í Wayback Machine
- Jarðskjálftarnir miklu á Suðurlandi 17. og 21. júní, 2000.; af vef jarðeðlisfræðideildar Veðurstofunnar
- Suðurlandsskjáftar; fylgiblað með Morgunblaðinu 2000[óvirkur tengill]
- Tvö svæði hafa orðið verst úti; grein í Morgunblaðinu 1977[óvirkur tengill]