Stuðlagil
Útlit
65°09′48″N 15°18′26″V / 65.1634°N 15.3072°V Stuðlagil er gil í Jökuldal á Austurlandi. Það hefur stórar og sérstæðar stuðlabergsmyndanir sem eru um 30 metra háar og blágrænleitt vatn.[1][2][3]
Áin Jökla rennur um gilið,[1] vatnið í ánni lækkaði um 7 til 8 metra vegna Kárahnjúkavirkjunar.[1]
Gilið varð óvænt vinsæll ferðamannastaður eftir að það var sýnt í ferðabæklingi WOW air árið 2017.[4] Aðgengi er takmarkað fyrir mikla umferð en mjór malarvegur er á svæðinu.[4] Leikarinn Will Smith tók upp þátt þar í kjölfarið.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Stuðlagil.
- East.is Stuðlagil Geymt 27 ágúst 2019 í Wayback Machine
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 1,2 „Ný sjónarhorn í Stuðlagili“. www.mbl.is. Sótt 31. ágúst 2020.
- ↑ „Svona kemstu niður að Stuðlagili“. www.mbl.is. Sótt 31. ágúst 2020.
- ↑ „Stuðlagili lokað í tvo daga vegna Wills Smiths“. www.mbl.is. Sótt 31. ágúst 2020.
- ↑ 4,0 4,1 „Vegur að Stuðlagili ræður illa við rútuumferð“. RÚV. 27. ágúst 2019. Sótt 31. ágúst 2020.