Stefán Ólafsson (f. 1619)
Útlit
(Endurbeint frá Stefán Ólafsson í Vallanesi)
Stefán Ólafsson (um 1619 – 29. ágúst 1688) var skáld, prestur og prófastur í Vallanesi. Hann fæddist á Kirkjubæ í Hróarstungu, sonur síra Ólafs Einarssonar skálds en Einar Sigurðsson í Eydölum var afi hans. Stefán var ungur settur til mennta, fyrst í Skálholtsskóla en síðar í Kaupmannahafnarháskóla. Hann sökkti sér á þeim árum mjög niður í norræn fræði og þýddi meðal annars Völuspá á latínu. Eftir fimm ára dvöl í Kaupmannahöfn sneri Stefán aftur til Íslands sumarið 1648. Árið eftir varð hann prestur í Vallanesi og síðar prófastur og þar bjó hann til dauðadags. Stefán orti mikið, bæði sálma og veraldleg kvæði. Er sumt af skáldskap hans létt og lipurt, gjarnan ort við lög og ætlað til söngs.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]- Liódmaeli eignud Sira Stepháni Ólafssyni
- Kvæði eptir Stefán Ólafsson I (Kaupmannahöfn 1885)
- Kvæði eptir Stefán Ólafsson II (Kaupmannahöfn 1886)
- Sýnisbók íslenskra bókmennta frá 1550 til 1900, Kristján Eiríksson tók saman, Reykjavík 2003.