Kasmírreynir
Kasmírreynir | ||||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Sorbus cashmiriana í október
| ||||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||||
| ||||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||||
Sorbus cashmiriana Hedl. |
Kasmírreynir (fræðiheiti; Sorbus cashmiriana) er tegund blómstrandi trjáplantna af Rósaætt, upprunnin úr vestur-Himalajafjöllum, Kasmír og Afghanistan.
Þetta er smávaxið tré eða runni sem verður 5 - 8m. hátt, með stofn sem verður um 25 sm. í ummál. Börkurinn er sléttur og grár til grárauður. Blöðin eru 15 - 23 sm. löng, fjöðruð, með 15 - 21 smáblöðum, dökk græn að ofan og ljósari að neðan, miðtaugin rauðleit, smáblöðin 3 - 5,5 sm. löng og 1,5 - 2 sm. breið og sagtennt. Blómin eru 7 - 10 mm að ummáli, með fimm fölbleik krónublöð og fölgula fræfla, í 18 sm. klösum að vori. Frjóvgun með skordýrum. Berin eru hvít eða ljósbleik 12 -15 sm að ummáli, þroskast að hausti og haldast oft langt fram á vetur.[1][2][3]
Ræktun
[breyta | breyta frumkóða]Þetta er vinsælt skrauttré, ræktað vegna klasa hvítra berja.[1][2][3] Hann hefur fengið Royal Horticultural Society's Award of Garden Merit.[4]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 Rushforth, K. (1999). Trees of Britain and Europe. Collins ISBN 0-00-220013-9.
- ↑ 2,0 2,1 Mitchell, A. F. (1974). A Field Guide to the Trees of Britain and Northern Europe. Collins ISBN 0-00-212035-6
- ↑ 3,0 3,1 Mitchell, A. F. (1982). The Trees of Britain and Northern Europe. Collins ISBN 0-00-219037-0
- ↑ „RHS Plant Selector - Sorbus cashmiriana“. Afrit af upprunalegu geymt þann 10 desember 2019. Sótt 4. júní 2013.