Skátar (hljómsveit)
Útlit
Skátar er hljómsveit sem var stofnuð í kringum árið 2001.
Hún er þekkt fyrir framkomu í hvítum göllum sem stundum eru kallaðir sæðisfrumugallar en eru í raun taldir vera einhvers konar rykvarnarvinnugallar sem hefur nýlega verið breyttir svolítið.[heimild vantar]
Lag hljómsveitarinnar sem heitir Halldór Ásgrímsson (hugsanlega eftir stjórnmálamanni úr framsóknarflokkinum) hlaut töluverða útvarpsspilun á Íslandi sumarið 2005.[heimild vantar]
Hljómsveitin hefur spilað á tónleikahátíðum eins og til dæmis Airwaves og Innipúkanum, en ekki upp á síðkastið vegna þess að meðlimir hennar búa núna í mörgum mismunandi löndum.
Meðlimir
[breyta | breyta frumkóða]- Bjössi - Bassi (gítar í einu lagi)
- Pétur - Trommur
- Benni - Gítar
- Markús Bjarnason - Söngur, hljómborð og viðbótarslagverk.
- Óli Steins - Gítar (bassi í einu lagi)
Útgefin verk
[breyta | breyta frumkóða]- Heimsfriður í Chile - stuttskífa 2004, Grandmother's records
- Ghost of the Bollocks to Come - Breiðskífa 2007, Grandmother's records
Einnig hafa komið út nokkur „demó“ í takmörkuðu magni.