Fara í innihald

Skattaskjól

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Skattaskjól er hugtak sem haft um svæði á jörðinni þar sem skattar eru litlir eða engir, og oftar en ekki er þar meiri bankaleynd en annars staðar. Þau lönd sem teljast vera skattaskjól skattleggja fjárfestingar og tekjur af þeim í miklu hófi eða alls ekki. Þetta laðar fjármagn að frá löndum þar sem skattheimta er þyngri. Í apríl árið 2010 var sagt frá því að Delaware í Bandaríkjunum væri orðið helsta skattaskjól heimsins, og næst á eftir kom Lúxemborg, Sviss og Caymaneyjar.[1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Delaware orðið helsta skattaskjól heimsins; grein af Vísi.is 19. apr. 2010[óvirkur tengill]
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.