Fara í innihald

Skátafélagið Eilífsbúar

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skátafélagið Eilífsbúar
Stofnun1929
StaðsetningBorgartún 2, Sauðarkrókur
FélagsforingiHildur Haraldsdóttir
StarfssvæðiSkagafjörður

Skátafélagið Eilífsbúar er skátafélag staðsett á Sauðárkróki. Félagið býður upp á skátastarf fyrir ungmenni í Skagafirði og er helsta áherslan á leiki, útivist og fræðandi samveru. Félagið er aðili að Bandalagi Íslenskra Skáta.[1]

Skátafélagið Andvari var stofnað árið 1929 og er fyrirvari skátafélagsins Eilífsbúa og miðar skátafélagið því sinn stofnunardag við stofnunardag Andvara.[2][3]

Skátaheimili

[breyta | breyta frumkóða]

Eilífsbúar hafa aðsetur í Borgartúni 2, Sauðarkróki, sem að liggur við húsnæði Björgunnarsveitarinnar Skagfirðingasveit, Sveinsbúð.[4] Áður hafði félagið aðsetur í gömlu timburhúsi sem að hét Gúttó. Það var eitt af aðal samkomuhúsum bæjarins á árum áður. Félagið flutti inn í það árið 1975.[5]

Eilífsbúar reistu skála árið 1991 skammt frá Arnarstapa vestan Varmahlíðar. Þeir fluttu skálann nærri fullsmíðaðann frá Sauðarkróki. Vigdís Finnbogadóttir vígði skálann í ágúst sama árið.[6]

Heimildaskrá

[breyta | breyta frumkóða]
  1. ↑ „Skátafélagið Eilífsbúar“. Bandalag Íslenskra Skáta. Sótt ágúst 2024.
  2. ↑ „Skátablaðið 5. árg. 3. tbl. 1939“. Bandalag Íslenskra Skáta. september 1939. Sótt ágúst 2024.
  3. ↑ „Skátablaðið 53. árg. 3. tbl. 1999“. Bandalag Íslenskra Skáta. desember 1999. Sótt ágúst 2024.
  4. ↑ „Google Maps“. Google. Sótt ágúst 2024.
  5. ↑ „Skátablaðið 47. árg. 1. tbl. 1993“. Bandalag Íslenskra Skáta. maí 1993. Sótt júlí 2025.
  6. ↑ SBG (september 1991). „HelgarDagur 74. árg. 179. tbl. 1991“. Dagur. Sótt maí 2025.