Fara í innihald

Sigfús Halldórsson syngur eigin sönglög 2

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sigfús Halldórsson syngur eigin sönglög 2
Bakhlið
EXP-IM 8
FlytjandiSigfús Halldórsson
Gefin út1954
StefnaDægurlög
ÚtgefandiÍslenzkir tónar

Sigfús Halldórsson syngur eigin sönglög 2 er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1954. Á henni flytur Sigfús Halldórsson fjögur lög við eigin undirleik. Lögin höfðu áður komið út á 78 snúninga plötum hjá Íslenskum tónum. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið og Norska útvarpið (Játning og Við tvö og blómið). Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló. Prentun: Alþýðuprentsmiðjan. Á umslagi er platan ranglega merkt EXP-IM 6.

  1. Játning - Lag - texti: Sigfús Halldórsson -Tómas Guðmundsson - Hljóðdæmi
  2. Tondeleyo - Lag - texti: Sigfús Halldórsson - Tómas Guðmundsson
  3. Íslenskt ástarljóð - Lag - texti: Sigfús Halldórsson - Vilhjálmur frá Skáholti
  4. Við tvö og blómið - Lag - texti: Sigfús Halldórsson - Vilhjálmur frá Skáholti