Fara í innihald

Iglur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Seglrendur)
Iglur
Igla á steinum
Igla á steinum
Vísindaleg flokkun
Ríki: Dýraríkið (Animalia)
Fylking: Liðormar (Annelida)
Flokkur: Clitellata (Clitellata)
Undirflokkur: Iglur (Hirudinea)
Lamarck, 1818
Ættir

Arhynchobdellida eða Rhynchobdellida
Það eru nokkrar deilur um hvort iglur ættu að vera egin flokkur eða undirflokkur Clitellata.

Iglur (eða seglrendur (sanguisuga) eða blóðsugur) (fræðiheiti: Hirudinea) eru liðormar. Til eru ferskvatns-, sjávar- og jarðiglur. Eins og ættingjar þeirra fáburstarnir þá hafa þeir gjörð. Margar iglanna eru blóðætur (sníkjudýr), þ.e. þær lifa á blóði fiska, froskdýra og spendýra með því að festa sig við þau og sjúga úr þeim blóð (þess vegna stundum bara kallaðar blóðsugur). Flestar iglanna eru þó rándýr, sem lifa á smáum ormum og öðrum hryggleysingjum.

Lækningaiglan (Hirudo medicinalis) sem lifir í Evrópu hefur verið notuð í þúsundir ára við blóðtöku. Iglan sprautar sérstöku efni í blóðið sem gerir það að verkum að það storknar síður.

  Þessi líffræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.