Oft er fjör í Eyjum - Erling Ágústsson
Útlit
(Endurbeint frá ST.PL.4)
Oft er fjör í Eyjum | |
---|---|
Stjörnuhljómplata 4 | |
Flytjandi | Erling Ágústsson, hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar |
Gefin út | 1960 |
Stefna | Dægurlög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Oft er fjör í Eyjum er 45-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1960 undir merkinu Stjörnuhljómplötur. Á henni syngur Erling Ágústsson tvö lög með hljómsveit Eyþórs Þorlákssonar. Eyþór sá um útsetningar og leikur á gítar, Reynir Jónasson leikur á saxófón og syngur bakraddir, Guðjón Pálsson leikur á bassa og Guðmundur Steingrímsson á trommur. Anna María Jóhannsdóttir og Sigrún Ragnarsdóttir syngja bakraddir. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Umslag: Amatörverslunin ljósmyndastofa. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Oft er fjör í Eyjum - Lag og texti: Mann, Lowe - Erling Ágústsson
- Þú ert ungur enn - Lag - texti: Logan, Price - Erling Ágústsson. - ⓘ