Hljómsveit Ingimars Eydal - Lög úr Mary Poppins
Útlit
(Endurbeint frá SG 527)
Lög úr Mary Poppins | |
---|---|
SG - 527 | |
Flytjandi | Helena og Þorvaldur |
Gefin út | 1968 |
Stefna | Kvikmyndatónlist |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Helena og Þorvaldur er 45 snúninga hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1968. Á henni flytja Helena og Þorvaldur með hljómsveit Ingimars Eydal sex lög úr Mary Poppins. Forsíðumynd tók Ljósmyndastofa Páls, Akureyri.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Starfið er leikur - Lag - texti: R. og R. Sherman - Baldur Pálmason ⓘ
- Töfraorðið - Lag - texti: R. og R. Sherman - Baldur Pálmason
- Fuglagrjón - Lag - texti: R. og R. Sherman - Baldur Pálmason
- Sótarasöngur - Lag - texti: R. og R. Sherman - Baldur Pálmason
- Á góðviðrisdegi - Lag - texti: R. og R. Sherman - Baldur Pálmason
- Flugdrekinn - Lag - texti: R. og R. Sherman - Baldur Pálmason
Textabrot af bakhlið plötuumslags
[breyta | breyta frumkóða]Lögin úr hinni vinsælu kvikmynd Mary Poppins hafa hlotið slíkar vinsældir hjá ungum sem öldnum að einstakt má telja. Sex þessara laga hafa verið valin á þessa hljómplötu og eru þau flutt hér með íslenzkum textum í vandaðri þýðingu Baldurs Pálmasonar. Hinir kunnu söngvarar Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur Halldórsson syngja lögin með undirleik hljómsveitar Ingimars Eydal, en Ingimar hefur jafnframt útsett tónlistina. Þó að þetta eigi fyrst og fremst að vera hljómplata fyrir börn, þá mun sennilega fara eins með plötuna og kvikmyndina Mary Poppins, að hinir fullorðnu munu engu að síður taka ástfóstri við hana. | ||