Bragi Hlíðberg - Dansað á þorranum
Útlit
(Endurbeint frá SG 118)
Bragi Hlíðberg - Dansað á þorranum | |
---|---|
SG - 118 | |
Flytjandi | Bragi Hlíðberg |
Gefin út | 1976 |
Stefna | Harmonikulög |
Útgefandi | SG - hljómplötur |
Hljóðdæmi | |
Bragi Hlíðberg - Dansað á þorranum er 33 snúninga LP hljómplata gefin út af SG - hljómplötum árið 1976. Á henni leikur Bragi Hlíðberg gömlu dansana.
Þetta er önnur hljómplata Braga Hlíðberg og hér leikur hann eingöngu gömlu dansana. Hann sýnir einnig á sér alveg nýja hlið, því öll lögin á plötunni hefur hann samið sjálfur. Magnús Ingimarsson útsetti allan undirleik og stjórnaði hljóðritun á honum og hafði umsjón með allri hljóðritun. Með Braga leika þeir Guðmundur R. Einarsson á trommur, Jón Sigurðsson á bassa og Þórður Árnason á gítar. Hljóðritun fór fram hjá Tóntækni hf. Tæknimaöur: Sigurður Árnason. Hljóðblöndun: Sigurður Árnason og Magnús Ingimarsson.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Dansað á þorranum - polki
- Skafrenningur - Marsúrki
- Pilsaþytur - Vínarkruss
- Hlöðuball - Vals
- Litli smalinn - Týrólapolki
- Í Húsafellsskógi - Vals
- Spunakonan - Polki
- Yfir stokka og steina - Ræll
- Vorgleði - Vals
- Tvö í tunglskyni - Tangó
- Jónsmessunótt - Vals
- Bláfjallapolki - Polki