Pottaskefill
Pottaskefill, einnig nefndur Pottasleikir, er fimmti jólasveinninn kallaður sem kemur til manna, þann 16. desember, samkvæmt þeirri röð sem birt er í Þjóðsögum Jóns Árnasonar frá 1862.
Pottaskefill skóf og sleikti í sig skófirnar innan úr pottunum.
Um hann kvað Jóhannes úr Kötlum:
- Sá fimmti Pottaskefill,
- var skrítið kuldastrá.
- -Þegar börnin fengu skófir
- hann barði dyrnar á.
- Þau ruku’upp, til að gá að
- hvort gestur væri á ferð.
- Þá flýtti’ ann sér að pottinum
- og fékk sér góðan verð.
Sjá nánar[breyta | breyta frumkóða]
Tengt efni[breyta | breyta frumkóða]
- Nöfn jólasveina eftir Árna Björnsson Geymt 2012-02-11 í Wayback Machine