Port Louis
Útlit
Port Louis er höfuðborg og stærsta borg eyríkisins Máritíus undan strönd Afríku í Indlandshafi. Frakkar gerðu hana að stjórnsýslumiðstöð árið 1735 og áfangastað fyrir skip á leið frá Góðravonarhöfða. Hún heitir eftir Loðvík 15. Frakkakonungi. Borgin er hafnarborg sem stendur á norðvesturströnd eyjarinnar. Höfnin er undirstaða efnahagslífs borgarinnar sem kemur best út allra afrískra borga í Lífsgæðakönnun Mercers. Íbúar voru um 150 þúsund árið 2012.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Port Louis.