Persónuleikaröskun
Persónuleikaröskun er tegund geðraskana og geðsjúkdóma. Þær eru einkenni í atferli einstaklings sem koma niður á öðrum. Maður með slíka röskun nær illa að laga sig að siðum samfélagsins en er þó í eðlilegum veruleikatengslum og hefur rökræna hugsun.[1] Matsatriði er hvar mörk eru á persónuleikaröskun og venjulegu fólki. Líklega er röskunin öfgakennd einkenni hjá fólki. Þær eru gagnlegar til að skilgreina hegðunarmynstur en ekki muninn á heilbrigði einstaklinga.[2]
Persónuleikaraskanir á Íslandi[breyta | breyta frumkóða]
Tíðni persónuleikaraskana á Stór-Reykjavíkursvæðinu er 11%, samkvæmt rannsókn á 805 manna úrtaki árið 2009.[3]
Heimildir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Gylfi Ásmundsson Persónuleikaröskun Geymt 2007-12-16 í Wayback Machine Lýðheilsustöð.
- ↑ Jakob Smári. „Hvað er persónuleikaröskun?“. Vísindavefurinn 23.3.2000. (Skoðað 22.2.2011).
- ↑ Tíðni persónuleikaraskana á Stór-Reykjavíkursvæðinu Læknablaðið