Pavel Lisitsian syngur
Pavel Lisitsian syngur | |
---|---|
IM 19 | |
Flytjandi | Pavel Lisitsian, Tatjana Kravtsenko |
Gefin út | 1953 |
Stefna | Sönglög |
Útgefandi | Íslenzkir tónar |
Pavel Lisitsian syngur er 78-snúninga hljómplata gefin út af Íslenzkum tónum árið 1953. Á henni syngur Pavel Lisitsian tvö lög við píanóundirleik Tatjönu Kravtsenko. Platan er hljóðrituð í mono. Upptaka: Ríkisútvarpið. Pressun: AS Nera í Osló.
Lagalisti
[breyta | breyta frumkóða]- Armenskt lag - Lag - texti: Dolucanjan
- Rósin - Lag - texti: Árni Thorsteinsson - Guðmundur Guðmundsson - ⓘ
Tilurð plötunnar
[breyta | breyta frumkóða]Armenski bariton-söngvarinn Pavel Lisitsian og píanóleikarinn Tatjana Kravsenko héldu nokkra tónleika á Íslandi á vegum MÍR í maí 1953. Þau fengu lofsamlega dóma fyrir flutning sinn og var upptöku af tónleikum útvarpað 31. maí 1953. [1][2] Tage Ammendrup fór þess á leit við listamennina að leika inn á plötu í þessari ferð og var talið viðeigandi að flutt yrði eitt lag frá Armeníu og eitt íslenskt lag. Rósin eftir Árna Þorsteinsson varð fyrir valinu sem fulltrúi íslenskra sönglaga. Pavel starfaði í Bolshoi leikhúsinu í Moskvu frá 1940-1966.