Fara í innihald

Orðatiltæki

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá Orðtak)

Orðatiltæki er hugtak sem er haft um fast orðasamband (til dæmis „e-ð er ekki heiglum hent“) eða orðtak (til dæmis „vera einn um hituna“), einnig fastar líkingar (til dæmis „fara eins og logi yfir akur“) og kunn orðasambönd (til dæmis „nú falla öll vötn til Dýrafjarðar“). Ekki má rugla orðatiltækjum saman við málshætti, sem eru föst eining og innihalda vissa lífsspeki (byggða á reynslu kynslóðanna) eða lífsviðhorf og eru (oftast) settir fram í einni setningu (til dæmis „Oft verður góður hestur úr göldum fola“).

Dæmi um orðatæki

[breyta | breyta frumkóða]
  • e-ð fellur í grýtta jörð
  • draga e-ð í dilka
  • fara bónleiður til búðar
  • víða er pottur brotinn - tökumáltæki úr dönsku sem fer að bera á undir lok 19. aldar
  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.