Oldham
Útlit
Oldham er borg á stórborgarsvæði Manchester, 11 km norðaustur af Manchester. Íbúar eru um 97.000 (2011). Oldham var mjög mikilvæg í iðnbyltingu Englands og miðstöð bómullariðnaðar og vefnaðar. Bærinn framleiddi um tíma meiri bómull en Frakkland og Þýskaland til samans.
Heimild
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Oldham.