Norður- og Austuramt
Útlit
(Endurbeint frá Norður- og austuramt)
Norður- og Austuramt var íslenskt amt sem varð til 15. maí 1770 þegar Íslandi var skipt niður í tvö ömt. Suður- og Vesturamt og Norður- og Austuramt. Amtið var lagt af árið 1904 þegar Íslendingar fengu heimastjórn.
Amtmenn í Norður- og Austuramti
[breyta | breyta frumkóða]- Ólafur Stephensen (1770-1783)
- Stefán Þórarinsson (1783-1824)
- Grímur Jónsson (1824-1833)
- Bjarni Thorarensen (1833-1841)
- Grímur Jónsson (1841-1850)
- Pétur Havsteen (1850-1871)
- Kristján Kristjánsson (1871-1881)
- Júlíus Havsteen (1881-1894)
- Páll Briem (1894-1904)
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Íslenska alfræðiorðabókin, 1. bindi, ritstjórar Dóra Hafsteinsdóttir og Sigríður Harðardóttir, Bókaútgáfan Örn og Örlygur, án útgst., 1990.