Níagara-fossar
Útlit
(Endurbeint frá Níagarafossar)
Níagarafossar eru röð gríðarstórra fossa í Níagarafljóti í austurhluta Norður-Ameríku á landamærum Bandaríkjanna og Kanada. Þeir skiptast í þrjá fossa: Skeifufossa, Ameríkufossa og minni Brúðarslörsfossa til hliðar við Ameríkufossa. Níagarafossar eru ekki sérlega háir, en mjög breiðir. Þeir eru vatnsmestu fossar Norður-Ameríku. Þeir eru bæði gríðarlega vinsæll áfangastaður ferðamanna og mikilvæg uppspretta raforku.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Níagarafossum.