Hreistursteinbrjótur
Útlit
(Endurbeint frá Micranthes foliolosa)
Hreistursteinbrjótur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hreistursteinbrjótur (M. foliolosa)
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Micranthes foliolosa (R. Br.) Gornall[1] | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Listi
|
Hreistursteinbrjótur (fræðiheiti: Micranthes foliolosa[2]) er blómplanta sem finnst á norðurslóðum norðurhvels.[3] Gamla heitið Saxifraga foliolosa er enn notað í blómabókum enda er ættkvíslin Micranthes nokkuð nýlega aðskilin steinbrjótum.[4]
Á Íslandi finnst hann hátt til fjalla á mið-Norðurlandi.
Hreistursteinbrjótur vex á rökum mosa eða flögum. Er lágvaxin planta (2–12 sm) með blöðin í hvirfingu neðst. Blómstöngullin er beinn með greiningu efst. Hann blómgast sjaldan, hefur yfirleitt æxlikorn í stað blóma.[5]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Gornall (2007) , In: J. Bot. Res. Inst. Texas 1(2): 1020
- ↑ Roskov Y., Kunze T., Orrell T., Abucay L., Paglinawan L., Culham A., Bailly N., Kirk P., Bourgoin T., Baillargeon G., Decock W., De Wever A., Didžiulis V. (ed) (2014). „Species 2000 & ITIS Catalogue of Life: 2014 Annual Checklist“. Species 2000: Reading, UK. Sótt 31 mars 2023.
- ↑ „Micranthes foliolosa (R.Br.) Gornall | Plants of the World Online | Kew Science“. Plants of the World Online (enska). Sótt 31. mars 2023.
- ↑ Douglas E. Soltis; Robert K. Kuzoff; Elena Conti; Richard Gornall; Keith Ferguson (1996). „matK and rbcL gene sequence data indicate that Saxifraga (Saxifragaceae) is polyphyletic“. American Journal of Botany. 83 (3): 371–382. doi:10.2307/2446171.
- ↑ Hreistursteinbrjótur Flóra Íslands. Skoðað 31. mars, 2023
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Hreistursteinbrjótur.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Micranthes foliolosa.