Gulldepla
Útlit
(Endurbeint frá Maurolicus muelleri)
Gulldepla | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Maurolicus muelleri Gmelin, 1789 |
Gulldepla eða norræna gulldepla (fræðiheiti: Maurolicus muelleri) er lítill fiskur af silfurfiskaætt. Hún er 5-8 sm löng, silfruð að lit en bakið grænblátt og röð af ljósfærum á maganum. Gulldepla er miðsjávarfiskur sem finnst frá yfirborðinu allt að 1500 metra dýpi en er algengust á 150-250 metrum á næturnar en við 50 metra á daginn. Hún er algengust í heittempruðum sjó í Norður- og Suður-Atlantshafi þar á meðal vestast í Miðjarðarhafi og nyrst í Karíbahafi og í Suðaustur-Kyrrahafi. Hún lifir á rauðátu.
Gulldepla finnst allt í kringum Ísland en hefur ekki verið nýtt í neinum mæli. Tilraunaveiðar á henni fóru fram snemma vors 2009 og aflinn var nýttur í bræðslu.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Gulldepla.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Maurolicus muelleri.